Leturstærð

Vestan við Hellissand er hraun fram í sjó og þar er merkilegur forn brunnur sem af einhverjum ástæðum er kenndur við Íra og nefndur Írskrabrunnur. Raunar eru einnig forn fiskbyrgi í hrauninu, ekki allfjarri, sem sumir telja að megi rekja til írskrar búsetu fyrir landnám og voru þau kynnt í Lesbók á síðasta ári. Írskrabrunnur var nánast týndur, því áfok og gróður höfðu í sameiningu nánast lokað brunninum. En hann hefur nú verið opnaður að nýju og sjást meðal annars hlaðin þrep, því brunnurinn er djúpur.
Ekki er gott að átta sig á staðnum fyrir ókunnuga, en þó er þar eitt sem hafa má til marks en það eru hvalbein, sum smá en eitt gríðarstórt og sést langt að. Þetta var raunar sögulegur hvalur; sá síðasti sem veiddur
var og unninn í Hvalstöðinni í Hvalfirði þar til hvalveiðar hófust að nýju árið 2006.