Póstlisti
Prenta

Á Hellissandi hafa verið reist þrjú minnismerki.

Hið fyrsta er í Sjómannagarðinum og heitir Jöklarar og er eftir Ragnar Kjartansson myndlistarmann.

Á sjávarkambinum við Hellisbraut á milli Nýborgar og Manga-skúrs er annað minnismerki sem heitir „Beðið í von“og er eftir Grím Marinó Steindórsson. Það var afhjúpað á sjómannadaginn árið 2000. 

Verkið afhjúpuðu tvær konur, þær Guðríður Þorkelsdóttir frá Laufási og Ólöf Jóhannsdóttir frá Skuld, en þær höfðu báðar beðið á bakkanum eftir ástvinum sínum á árum áður.

Verkið stendur á bakkanum ofan við hina fornu Brekknalendingu á Hellissandi. Verkið er af þremur konum með börn sem standa á bakkanum og horfa til hafs. Á minnismerkinu stendur: „Til minningar um mannlíf og sjósókn á opnum bátum frá Hellissandi á liðnum öldum. Lífsbjörg þurfti að sækja í greipar ægis. Ekki komu allir heim frá þeirri glímu, sumir komu aldrei aftur“.

Aðalhvatamaður að gerð þessa minnismerkis var Arnar Sigurðsson frá Hallsbæ ásamt brottfluttu fólki úr fyrrum Neshreppi utan Ennis með stuðningi heimaaðila.

Minnsimerki

Á Klettsbúðartúninu er  þriðja minnismerkið sem er eftir Jón Gunnar Árnason.