Leturstærð


Esjar SH 75 - Aflatölur Esjars
Esjar ehf. gerir út fiskibátinn Esjar SH 75. Tilurð útgerðarinnar má rekja til ársins 1975 þegar hjónin Ragnar Guðjónsson og María Antonsdóttir keyptu Hafborgu sem var átta tonna trébátur. Ragnar skýrði bátinn Esjar eftir fyrri eiganda hans. Fyrstur árin réri Ragnar, eða Raggi á Horninu eins og hann er kallaður í daglegu tali, einn á Esjari og stundaði hann þá bæði skak, línu-, og netaveiðar. Raggi varð fljótt þjóðkunnur aflamaður og þekktur af dugnaði sínum og sóknarhörku. Það var því nokkuð ljóst að hann myndi ekki lengi láta sér þennan bát duga og úr varð að hann keypti nýjan Esjar árið 1990 sem var 15 tonna plastbátur smíðaður á Skagaströnd. Þessum báti réri Raggi til ársins 1999, þegar hann kaupir þriðja bátinn, en þá í félagi við son sinn Anton Ragnarsson. Þann bát eiga þeir feðgar enn. Hann var lengdur árið 2002. Anton hefur nú alfarið tekið við skipstjórninni af föður sínum sem farinn er að sinna sínum hugðarefnum í landi.