Póstlisti
Prenta

Fiskmarkaður Íslands.

Fiskmarkaður Íslands hf. sem varð til við sameiningu Fiskmarkaðar Breiðafjarðar hf. og Faxamarkaðarins hf., er stærsti fiskmarkaðurinn á Íslandi og fer u.þ.b. 50% af öllu seldu magni á íslenskum fiskmörkuðum gegnum Fiskmarkað Íslands hf.

Afgreiðslustaðir Fiskmarkaðs Íslands hf. eru 8 talsins, í Þorlákshöfn, Reykjavík, Akranesi, Arnarstapa, Rifi, Ólafsvík, Grundarfirði og Stykkishólmi. Skrifstofa félagsins er í Ólafsvík, sem jafnframt er stærsti einstaki móttökustaðurinn.

Meirihluti þess afla sem seldur er hjá Fiskmarkaði Íslands hf. er af dagróðrabátum og er fiskurinn seldur áður en honum er landað. Því er ferskleiki fisksins og gæði mikil. Við löndun er þess gætt að fiskurinn sé vel ísaður og að honum sé raðað í einangruð fiskker, jafnframt er hitastig fisksins mælt og það skráð. Eftir að fiskinum hefur verið landað er hann flokkaður og veginn, hann ísaður að nýju og síðan er hann afgreiddur til kaupenda, yfirleitt að kveldi veiðidags.

Uppboð fara fram á hádegi alla daga, og geta kaupendur mætt til uppboðs á 30 mismunandi stöðum vítt og breitt um landið. Um mitt ár 2003 var tekið í notkun nýtt uppboðskerfi „Fisknet”. Fer það uppboð fram á internetinu og geta kaupendur því tengst uppboðskerfinu frá tölvum sínum hvar sem er í heiminum.

Heimasíða Fiskmarkaðar Íslands.