Leturstærð

Sjávariðjan Rifi ltd. var stofnuð 1994. Fyrirtækið rekur fiskvinnslu að Hafnargötu 8 Rifi. Markmið fyirtækisins er að vinna afurðir úr fyrsta flokks hráefni, sem uppfylla kröfur kaupendanna um ferskleika og gæði. Fiskvinnslan hefur þróast ár frá ári og er orðin sérhæfð vinnsla á þorskbitum og aukaafurðum. Afurðunum er ýmist pakkað ferskum í frauðplastkassa og fluttar flugleiðis erlendis eða þær eru frystar, pakkaðar og fluttar sjóleiðis á áfangastað. Afurðir sínar selur fyrirtækið m.a. til Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Belgíu og einnig lítilsháttar innanlands. Söluaðilar eru SÍF hf. og Tros ehf. Sandgerði.
Sjávariðjan Rifi hf. er í eigu hjónanna Kristins Jóns Friðþjófssonar og Þorbjargar Alexandersdóttur og barna þeirra Erlu, Kristjönu, Bergþóru, Halldórs og Alexanders. Kristinn Jón Friðþjófsson er framkvæmdastjóri fyrirtækisins og Guðrún Gísladóttir verkstjóri.
Ársverk við vinnslunna eru 18 og við útgerðina eru þau 12.
Fjölskyldan á tvo báta sem sjá vinnslunni fyrir mestum hluta hráefnisins.
Bátarnir eru:

Hamar SH 224 brl. 235, smíðaður í Englandi 1964. -- Aflatölur Hamars

Litli Hamar SH 222 brl. 11, smíðaður 1988. -- Aflatölur Litla Hamars