Leturstærð

Bára SH 27 - Aflatölur Báru SH - ljósmynd Alfons FinnssonUppruna Hjallasands efh. má rekja allt til ársins 1983, er Örn Hjörleifsson, faðir Arnar Arnarssonar sem nú er eigandi Hjallasands ehf., keypti bátinn Sædísi frá Ólafsvík og gaf henni nafnið Bára. Örn reri með föður sýnum á unglingsárum og fór í stýrimannaskólann árið 1988, þaðan sem hann lauk prófi. Örn keypti sinn fyrsta bát í félagi við föður sinn og bróður sinn Bjarna þegar þeir voru í stýrmannaskólaárunum. En það var 38 tonna eikarbátur. Til varð félagið Bára sf. sem seinna eignaðist bátinn Vikar frá Keflavík sem þeir skýrðu Báru. Í samrekstri við föður sinn gerði Örn bátinn út til ársins 2001 þegar faðir hans hætti sjómennsku.Árið 2005 keypti Örn bátinn Friðrik Bergmann, 60 tonna stálbát sem hann gerir út á dragnót.Örn er kvæntur Guðríði Sirrý Gunnarsdóttur sem rekur með honum útgerðina en hún er jafnframt starfsmaður í Landsbanka Íslands á Hellissandi.