Leturstærð


Þorsteinn SH 145 --- Afli Þorsteins SH
ljósmynd Alfons Finnsson
Nesver var stofnað á Rifi árið 1987 af þeim Ásbirni Óttarssyni sem nú er aðaleigandi þess og Kristjáni Jónssyni frá Ártúni. Nesver var fyrst um sinn fiskverkun í eigu þeirra félaga en félagið breyttist í Nesver ehf. við samruna útgerðar Kristjáns sem gerði út einn bát. Þeir félagar hættu fiskvinnslu árið 1992 og seldu hús það sem þeir höfðu byggt á Rifi. Árið 1989 keyptu þeir félagar bátinn Neista frá Hvammstanga sem þeir gáfu nafnið Þorsteinn SH 145. Þann bát seldu þeir síðan og keyptu bátinn Sólberg frá Grundarfirði, en sá bátur var 60 tonna stálbátur. Þennan bát átti félagið til ársins 1998 er þeir seldu hann og keyptu í staðinn Njarðvík KE sem er 130 tonna stálbátur og fékk að hann nafnið Þorsteinn SH 145 eins og fyrri bátar félagsins.
Kaflaskil urðu í rekstri félagsins árið 2003, en þá ákvað Kristján að selja sinn hlut í félaginu og úr varð að Ásbjörn og kona hans Margrét Scheving keyptu hlut Kristjáns og hafa þau verið ein eigendur félagsins frá þeim tíma.