Leturstærð

Sandbrúnar ehf. gerir út tvo báta sem eru:
Rifsari SH 70 --- afli Rifsara SH ljósmynd Alfons Finnsson
Diddi SH 42 --- afli Didda SH ljósmynd Alfons FinnssonÚtgerðafélagið er í eigu Baldurs Kristinssonar sem er innfæddur Rifsari og eiginkonu hans Guðrúnar Jensdóttur. Þau stofnuðu félagið árið 1999 þegar þau hættu samrekstri með Hraðfrystihúsi Hellissands á Rifsnesi SH 44 sem þau höfðu átt með HH allt frá árinu 1980. En Baldur var skipstjóri á því skipi allt frá kaupum þess þar til Sandbrún var stofnuð og hann hóf að róa Rifsara SH 70 sem er 98 brúttótonna stálbátur smíðaður árið 1987. Báturinn hét áður Auðbjörg SH og var gerð út frá Ólafsvík.
Baldur Kristinsson hefur stundað sjó frá ungaaldri. Hann byrjaði að stunda sjó með föður sínum Kristni Haraldssyni sem barn eins og títt er um íslenska sjómenn. Hans fyrsta launaða sjómannsstarf var um borð í Hamri hjá þeim Sævari Friðþjófssyni og Kristni Jóni Friðþjófssyni, en þeir eru móðurbræður Baldurs eða Balda eins hann er kallaður í daglegu tali.
Baldi gerður ungur skipstjóri, eða aðeins 23ja ára gamall árið 1975, en þá tók hann við skipstjórn á Hamrasvani SH 201 sem gerður var út frá Rifi að Sigurði Ágústssyni hf. í Stykkishólmi. Var hann skipstjór á Hamrasvani til 1978 er hann tók við Fróða SH 15, í eigu Hróa hf. í Ólafsvík, sem hann stýrði til ársins 190 þegar hann tók við Rifsnesinu eins og áður segir.