Póstlisti
Prenta

Hundraðasta ártíð Helgu Elísdóttur

Í tilefni af 100 ára ártíð Helgu Elísdóttur frá Gilsbakka, hefur sonur hennar Grétar Kristjónsson ákveðið að standa fyrir uppákomu í Tröðinni á Sandaragleðinni í sumar. Uppákoman hefur enn ekki verið skipulögð eða tímasett en nánari frétt mun birtast á vefnum þegar nær dregur.

Grétar býður öllum þeim sem vilja taka þátt í uppákomunni að koma í Tröðina af þessu tilefni. 

Grétar sendi vefnum þessa Sonnetu  sem hægt er að syngja við "Nú andar suðrið"

Við Breiðafjörð.
(Sonnetta)
 
Á Breiðafirði bára rís í vindi
og berst um langan veg til fjörusanda;
eldgömul fjöll mót Ægi sjálfum standa,
Útnesið bláa skartar Jökultindi.
 
Minn hugur ber mig heim til æskuslóða
og hér var borinn drengur ungur forðum,
og mætti ég því mæra þig í orðum,
þú mikla, góða móðir ungra ljóða.
 
Úrsvali breiður, blástu lengi – lengi,
ljúfsárum trega fylltu hugann draumi,
þegar ég hugsa heim í ríki þitt.
Leiktu sem forðum létt á þýða strengi,
lýriskan draum í sjávarfallastraumi.
Eldbrunnar strendur, eru landið mitt.
 
Kveðja.
Grétar Kristjónsson.

Til baka