Leturstærð

Jón Einarsson aflakló frá Rifi hefur heldur betur verið að gera það gott á sjóstangveiðimótum undanfarið. Jón sigraði nýverið stangveiðimót á Akranesi þar sem hann fékk 371,94 kíló. Jón tapaði naumlega sigrinum á móti sem haldið var á Patreksfirði en þar drógu stangveiðimenn að landi hreint ótrúlegan afla og sett voru bæði Íslandsmet og heimsmet.
Sjósnæ átti fjóra þátttakendur á mótinu á Akranesi en það voru, Jón Einarsson, Eyjólf Sigurðsson, Björg Guðlaugsdóttir og Sigurður Arnfjörð. Veðrið var þokkalegt fyrri daginn og mjög gott seinni. Veiðin hefði mátt vera meiri , en í stuttu máli þá vann Jón mótið svo hann er hár í stigum til Íslandsmeistaratitils með 490 stig eftir tvö mót. Þá gerði hún Bjögga sér lítið fyrir og náði í stærstu Ýsuna sem var 2,14 kg og ekki nóg með það heldur var hún í öðru sæti í kvennaflokki með 252,86 kg. Sem sagt fólkið hjá Sjósnæ stóð sig með prýði eins og venjulega.
Einnig má geta þess að fyrsta strandveiðimót á vegum Efsa Íslandi var haldið 6.-7. júní á Hellissandi. Mótið tókst mjög vel og aflaðist vel.
Úrslit urðu:
1. Steve Reykjavík
2. Helgi Bergs Ólafsvík
3. Reynir Halldórsson Stykkishólmi