Póstlisti
Prenta

Alda Dís í úrslit í söngvakeppni Samfés -snb.is

Um miðjan janúar var Vesturlandskeppni söngvakeppninnar Samfés haldin í Grundaskóla á Akranesi. Alda Dís Arnardóttir (dóttir Össa og Sirrýar) og Birgitta Baldursdóttir (dóttir Balda og Betu í Rifi) sungu fyrir hönd félagsmiðstöðvarinnar Afdreps og komst Alda Dís áfram í úrslit með lagið "You light up my life" ásamt Ingu Maríu Hjartardóttir sem söng fyrir hönd Arnadals á Akranesi.

 Keppnin var jöfn og skemmtileg og  voru keppendur sér til mikils sóma. Óskum við þeim og sérstaklega Öldu Dís til hamingju með árangurinn.  Nú er bara að bíða og sjá hvernig henni mun farnast í aðalkeppninni sem fram fer í Reykjavík 21. febrúar næstkomandi.  

Fréttin er af snb.is

Til baka