Póstlisti
Prenta

Lífsbjörg fær fjórhjól að gjöf. - snb.is

Um síðustu helgi var björgunarsveitinni Lífsbjörg afhent öflugt fjórhjól að gjöf, gefendur eru hjónin Óttar Sveinbjörnsson og Guðlaug Íris Tryggvadóttir. Fjórhjólið sem er af gerðinni Yamaha Grizzly er gefið í tilefni af 40 ára verslunarafmæli þeirra hjóna og einnig í tilefni af því að liðin eru 80 ár frá stofnun björgunarsveitarinnar Bjargar á Hellissandi.

Gjöfin er til minningar um Benedikt S. Benediktsson verslunarmann en hann var afi Óttars. Benedikt var einn aðal hvatamaðurinn að stofnun björgunarsveitarinnar Bjargar og stóð ásamt fleirum fyrir því að haldinn var borgarafundur á Hellissandi þann 3. desember 1928 um stofnun félagsins.

Á 30 ára afmæli Slysavarnafélags Íslands árið 1958 var Benedikt gerður að heiðursfélaga félagsins og fékk því til staðfestingar heiðursorðu Slysavarnafélags Íslands, um leið og Óttar afhenti Lífsbjörg fjórhjólið færði hann björgunarsveitinni heiðursorðu afa síns til varðveislu.

Til baka