Leturstærð

Í síðustu viku komu konur úr lionsklúbbnum Þernunni á Hellissandi og Rán í Ólafsvík færandi hendi þegar þær gáfu félagsmiðstöðinni Afdrep sófasett. Unglingarnir voru í skýjunum með þessa góðu gjöf og njóta þess að hreiðra um sig í þessu nýja setti og spjalla saman eða horfa á góða mynd.
Einnig er á döfinni að kaupa heimabíó fyrir ágóðan af innkomunni af Stíl og söngkeppninni sem haldin var hér í bæ í október sl. Unglingar og starfsfólk í Afdrepi þakka kærlega fyrir þennan góða stuðning.