Leturstærð

Í haust og vetur hefur Umf. Reynir staðið fyrir karaokekeppni meðal fyrirtækja í Snæfellsbæ. 32 lið hófu keppni og nú standa 10 lið eftir í undanúrslitum sem fara fram næstkomandi föstudag, 6. feb.
Ritsjóri hellissands.is var viðstaddur eina af undankeppnunum og getur vitnað um að frábærlega er að verki staðið. Allur undirbúningur er hinn faglegasti undir handleiðslu Kidda Haffa og Loftur Bjarnason og hans fólk fer á kostum. Fram hafa komið á fyrri keppnum ýmsir talentar sem hvert pláss getur verið stolt af að eiga.
Keppnin hefur verið hörð og því hafa hæfileikaríkir söngvarar þegar fallið úr keppni með sóma.
Nú magnast spennan því nú er barist um hvaða fimm keppendur komast áfram á
föstudaginn í úrslitakeppni Karaokoekeppni Umf. Reynis á Hellissandi.
Þau lið sem eftir eru í keppninni eru:
Vör sjávarrannsóknarsetur
Mangi á Búðum
Hárgreiðslustofa Gunnhildar
Magnús SH
Landsbankinn
Fiskmarkaðurinn
Smur og dekkjaþjónustan
K.G. Fiskverkun
Matthías SH
Sólarsport