Prenta
Brim.

Guðmundur Kristjánsson er forstjóri Brims.
Brim hf. er stofnað 1998 þá sem Útgerðarfélagið Tjaldur ehf. þegar þeir feðgar, Kristján Guðmundsson, Hjálmar Kristjánsson og Guðmundur Kristjánsson, skiptu upp rekstri sínum á Rifi. Guðmundur var þá fluttur til Reykjavíkur og tók alfarið við rekstri Útgerðarfélagsins Tjalds ehf. Félagið var frá upphafi til húsa að Tryggvagötu 11 í Reykjavík og er þar enn í dag. Árið 2005 var nafni Útgerðarfélagsins Tjalds ehf. breytt í Brim hf.
Árið 2004 keypti félagið í samvinnu við KG fiskverkun á Rifi, Útgerðarfélag Akureyringa. Í framhaldi var ÚA sameinað inn í Brim hf árið 2005. Í dag er Brim hf með víðtæka starfsemi í sjávarútvegi á Íslandi. Það gerir út frystitogarann Guðmund í Nesi RE 13, línu og netabátinn Tjald SH 270, ferskfisktogarana Harðbak EA 3, Kaldbak EA 1, Árbak EA 5 og Sólbak EA 7 og snurvoðarbátinn Sólborg RE 270. Fyrirtækið rekur fullkomna fiskvinnslu á Akureyri og í Grenivík og er auk þess með tilraunaþorskeldi í Eyjafirði jafnt í eldisþorski og áframeldi á villtum þorski. Loks er dótturfélag Brims hf, Laugafiskur, með eina af öflugustu fiskþurrkun landsins á Laugum í Þingeyjarsýslu og á Akranesi. Árið 2006 starfa rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu. Félagið hefur aflaheimildir sem nemur um 25.000 þorskígildum í hinum ýmsu fisktegundum.