Leturstærð

Kvennasveitin Dagbjörg sem er félagi í Slysavarnafélaginu Landsbjörgu var stofnuð á Suðurnesjum árið 1995. Gamlir Sandarar komu mikið við sögu á stofnun félagsins og meðal stofnfélaga voru Guðbjörg Lárusdóttir, Auður Sigurðardóttir, Heiðrún Sigurðardóttir, Erla Björk Sigurðardóttir (allt dætur Guðbjargar), Anna B. Jamison (tengdadóttir Guðbjargar), Karen Rúnarsdóttir (dóttir Auðar og Rúnars Georgssonar fyrrum íþróttakennara á Sandi), Petrína Sigurðardóttir (dóttir Sigga Guðna og Steinu), og Valgerður Sigurvinsdótti (dóttir Hansínu og Georgs Sigurvinssonar)
Í fyrstu stjórn félagsins voru fjórar konur tengdar Hellissandi.

Myndin: Stjórn sveitarinnar. Heiðdís Búadóttir ritari, Auður Sigurðardóttir formaður, Kristbjörg Guðmundsdóttir varaformaður, Anna B. Jameson meðstjórnandi, Lilja Sigurðardóttir varamaður, Erla Sigurðardóttir varamaður og Valgerður Sigurvinsdóttir gjaldkeri.