Póstlisti
Prenta

Fasteignamiðlun í Síðumúla 11 eiga tveir gamlir Sandarar en það eru Pálmi Almars og sonur hans Sverrir.

Pálmi B. AlmarssonPálmi B. Almarsson lögg.fasteignasali og  Sverrir sonur hans eiga og reka Fasteignamiðlun.  Pálmi útskrifaðist frá Bifröst árið 1983. Hann starfaði á Fasteignamiðlun á árunum 1987- 1995 er hann stofnaði sína eigin sölu undir heitinu Bifröst ásamt bróður sínum Sigfúsi og Guðmundi Birni frá Ólafsvík.  Pálmi keypti þá félaga út úr rekstrinum og rak Bifröst  einn síðustu árin eða þar til hann seldi árið 2005. 2006 keypti hann og Sverrir Fasteignamiðlun af Sverri Kristjánssyni.

Sverrir B. PálmasonSverrir B. Pálmason útskrifaðist sem viðskiptalögfræðingur frá Háskólanum á Bifröst árið 2007 og stundar nú meistarnám í lögfræði frá sama skóla. Hann starfar í hlutastarfi hjá Fasteignamiðlun.