Póstlisti
Prenta

Jón Oddur Halldórsson er fæddur árið 1982 og ólst upp á Hellissandi.

Jón Oddur stundar nám í rafeindavirkjun við Iðnskólann í Reykjavík og hefur verið fremsti frjálsíþróttamaður ÍF síðan 2002.

Jón Oddur, sem er spastískur og keppir í flokki T35, keppir fyrir félag sitt Reyni, Hellissandi en árið 2006 æfði Jón Oddur með frjálsíþróttadeild Ármanns undir daglegri stjórn Stefáns Jóhannssonar en yfirumsjón hafði Kári Jónsson, landsliðsþjálfari ÍF í frjálsum.

Jóni Oddi, var boðin þátttaka í Visa Paralympic Cup, en til mótsins var stofnað til að bjóða fötluðum afreksíþróttamönnum upp á hágæða keppni á árunum milli Ólympíumóta, sem haldin eru á fjögurra ára fresti. Á mótinu sigraði Jón Oddur í 200 m hlaupi og hafnaði í öðru sæti í 100 m hlaupi. Þá sigraði Jón Oddur fjórða árið í röð bæði 100 og 200 m hlaupi í sínum flokki á Opna breska meistaramótinu. Jón Oddur hafnaði síðan í þriðja sæti í 100 m hlaupi á Heimsmeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum sem fram fór í Assen í Hollandi og ávann Íslandi þannig þátttökurétt á Ólympíumótinu sem fram fer í Peking 2008.

Árangur Jóns Odds á árinu 2006:

Árangur Jóns Odds árið 2006 hefur verið með eindæmum góður þó svo að meiðsl hafi háð honum seinni hluta sumars. Slíkt er ekki síst að þakka þrotlausum æfingum hans og óbilandi viljastyrk.

Á heimsafrekalistanum (IPC) er Jón Oddur í þriðja sæti í 100 m hlaupi á eftir Fu Xin Han frá Kína og Heims- og ólympíumeistaranum Mokgalagadi frá Suður-Afríku.

Í 200 m hlaupi skipar Jón Oddur fyrsta sæti heimsafrekalistans en næstur á eftir honum er Mokgalagadi frá Suður-Afríku. Árangur á alþjóðamótum síðustu 4 ára:      

 

Grein/flokkur

Hvar

Sæti

Athugasemdir

HM-2006

100m t35

Assen

3

 

EM- 2005

100m og 200m t-35

Espoo

1. + 2.

 

ÓL- 2004

100m og 200m t-35

Aþena

2. + 2.

Ísl. og norðurl. met

EM- 2003

100m og 200m t-35

Assen

1. + 1.

Ísl. og norðurl. met

HM- 2002

100m og 200m t-35

Kúluvarp f-35

Lille

2. + 2.

4.

Ísl. og norðurl. met

Annað

100m og 200m t-35

Opna breska

1.+ 1.

Sigur 2003, 04, 05 og 06

    

Staða á afrekaskrá:                    

Afrekaskrá

2005

100 m hlaup

2006

200 m hlaup

Evrópuskrá

1

1

Heimsskrá

3

1