Póstlisti
Prenta

Toppfiskur

Toppfiskur hefur verið starfræktur frá árinu 1979 og telur nú um 80 starfsmenn. Toppfiskur er fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir yfir 10.000 tonn af ýsu og þorski á ári.

Öll vinnsla fer fram í nýju 2500 fm. húsnæði fyrirtækisins við Fiskislóð í Reykjavík. Vinnsluhúsið er búið fullkomnasta vinnslukerfisbúnaði sem völ er á til að fullvinna hráefni með sem skjótustum hætti í gegnum vinnsluna.

Jón Steinn Elíasson er fæddur og uppalinn Sandari. Hann bjó að Hellisbraut 7 á Hellissandi eða í Lánni eins og Söndurum var tamt að segja.  Jón Steinn hefur rekið Toppfisk frá árinu 1979 ásamt fjölskyldu sinni.