Leturstærð

![]()
Systkini Eðvarðs eru: Sigurjóna (hálfsystir sammæðra), Kristín, Guðrún, Jónína, Inga og Guðný Úlla.
Nám:
Stúdent frá M.E. 1981. Cand. theol frá Háskóla Íslands 1995.
Störf:
Stundaði ritstörf jafnhliða námi og öðrum störfum frá 1980. Dagskrárgerðarmaður í hlutastarfi hjá Ríkisútvarpinu, rás 1 og rás 2, 1981-86. Blaðamaður hjá barnablaðinu Æskunni 1982-84 og ritstjóri frá 1985-90. Ritdómari á Morgunblaðinu 1990-94. Ritstjóri Regins, tímarits templara, 1991-99. Leiðbeinandi í Grunnskólanum Lundi, Öxarfirði, veturinn 1996-97. Skipaður sóknarprestur í Skinnastaðarprestakalli Í Norður-Þingeyjarsýslu frá vígsludegi, 25. febrúar 1996. Skipaður sóknarprestur í Garðaprestakalli á Akranesi frá 1. desember 1997.
Félags- og trúnaðarstörf:
Gaf út 15 ára Fréttablaðið Sand ásamt Michael Sigþórssyni. Formaður Ungmennafélagsins Reynis á Hellissandi, 1977-1978, gjaldkeri þar á undan. Framkvæmdastjóri Héraðssambands Snæfellsness- og Hnappadalssýslu 1980. Í stjórn Skálholtsútgáfunnar 1986-91. Í stjórn barnablaðsins Æskunnar 1990-1996.
Viðurkenning:
Verðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkur fyrir bestu frumsömdu barna- og unglingabókina 1988.
Fjölskylduhagir:
Kvæntist 21. september 1985 Bryndísi Sigurjónsdóttur, f. 1963, grunnskólakennara. Börn þeirra: Elísa, f. 31. maí 1986. Ingólfur, f. 5. ágúst 1989. Sigurjón, f. 15. maí 1996.
Barna- og unglingabækur:
Gegnum bernskumúrinn, Rvík 1980. (Endurútg. 1991).
Hnefaréttur, Rvík 1981.
Birgir og Ásdís, Rvík 1982. (Endurútg. 1994).
Fimmtán ára á föstu, Rvík 1984.
Sextán ára í sambúð, Rvk 1985.
Ástarbréf til Ara, Rvík 1986.
Pottþéttur vinur, Rvík 1987.
Meiriháttar stefnumót, Rvík 1988.
Haltu mér - slepptu mér, Rvík 1990.
Ævisögur og endurminningar:
Við klettótta strönd, Mannlífsþættir undan Jökli, Rvík 1983.
Reynir Pétur og Íslandsgangan, Rvík 1985.
Baráttusaga athafnamanns. Ævisaga Skúla Pálssonar á Laxalóni, Rvík 1988.
Árni í Hólminum, engum líkur! Ævisaga Árna Helgasonar, Rvík 1989.
Lífssaga Ragga Bjarna, söngvara og spaugara, Rvík 1992.
Heimild. Rithöfundasamband Íslands