Samúel Jón Ólafsson
Samúel Jón Ólafsson var fæddur í Reykjavík 21. júlí 1944. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Samúelsdóttir og Ólafur Helgi Guðmundsson húsgagnasmíðameistari. Samúel lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1964. Hann stundaði nám í viðskiptadeild Háskóla Íslands og lauk prófi þaðan árið 1972. Samúel var um skeið sveitarstjóri á Fáskrúðsfirði og síðan í Neshreppi utan Ennis. Hann var einnig um hríð skrifstofustjóri í Lyfjaverslun ríkisins.
Hinn 23. júlí 1966 gekk Samúel að eiga Ingibjörgu Helgu Júlíusdóttur hjúkrunarfræðing. Börn þeirra eru: Ólafur Helgi Samúelsson læknanemi, Þóra Guðrún Samúelsdóttir, Kolbrún Gyða Samúelsdóttir nemi, Samúel Jón Samúelsson nemi.
Þau Samúel og Ingibjörg störfuðu í tæp fimm ár við þróunar- og hjálparstörf í Súdan og í Eþíópíu. Samúel hóf störf í Úganda hjá dönsku þróunarstofnuninni Danida. Hann var á gangi á götu í Kampala ásamt konu sinni og Samúel syni sínum, þegar ódæðismenn réðust á hann. Þeir særðu hann til ólífis, að viðstaddri eiginkonu og syni. Samúel Ólafsson lést skömmu síðar í sjúkrahúsi.