Leturstærð

Skúli fæddist í Reykjarfirði á Ströndum 9. sept. 1926.
Foreldrar hans eru Alexander Árnason (f. 6. ágúst 1894, d. 11. febr. 1970) bóndi þar og Sveinsína Ágústsdóttir (f. 7. júní 1901, d. 3. nóv. 1987) húsmóðir.
Skúli kvæntist þann 23. júní 1955, Hrefnu Magnúsdóttur (f. 24. júní 1935) verslunarmanni. Foreldrar hennar eru Magnús Ólafsson og kona hans Ásta Sýrusdóttir.
Börn Skúla og Hrefnu eru Ari (1956), Hulda (1958), Drífa (1962).
Skúli lauk héraðsskólapróf Reykjanesi 1942 og samvinnuskólaprófi 1950. Hann stundaði síðan nám í framhaldsdeild Samvinnuskólans 1950 1951.
19511952 var hann verslunarmaður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki og hjá Kaupfélagi Hellissands 1952 1955. Rak útgerð 19541969. Framkvæmdastjóri Jökuls hf. á Hellissandi frá 1961, þar til það fyrirtæki hætti rekstri. Forstöðumaður Gistihússins Gimli á Hellissandi frá 1991 þar til það varð hluti af rekstir Hótels Hellissands.
Trúnaðarstörf:
Oddviti Neshrepps utan Ennis 19541966, 19701974 og 19781981.
Í stjórn landshafnar í Rifi 19591990.
Í flugráði 19801987 og frá 1991.
Í stjórn Sementsverksmiðjunnar 19801989.
Formaður Skógræktar- og landverndarfélags undir Jökli síðan 1990.
Skúli sat í stjórnskipaðri nefnd til undirbúnings stofnun þjóðgarðs undir Jökli.
Alþingismaður Vesturlands 19791991 (Alþb.).
Varaþingmaður Vesturlands okt.nóv. og des. 1971, nóv.des. 1972, des. 1974, maí og des. 1976, des. 1977 og nóv.des. 1978.
Heimild: althingi.is