Leturstærð

Frásögn eftir Jens Hermannsson úr bókinni Breiðfirskir sjómenn sem upphaflega kom út um 1950 - 1953 en var endurútgefin af Skuggsjá 1976. Þegar þetta er skráð erum viðkomandi báðir á lífi.
Danelíus Sigurðsson formaður á Hellissandi er fæddur í Ólafsvík 13. júní 1895, sonur Sigurðar Gilssonar og Guðrúnar Cýrusdóttur, er þá bjuggu þar. Hann er kvæntur Sveindísi Hansdóttur Ólafssonar á Hellissandi. Bjuggu þau fyrst í Keflavík, en fluttust þaðan á Hellissand og hafa búið þar síðan. Þau eignast margt barna. Danelíus hefur verið sjómaður frá barnæsku, en formaður síðan 1914. Þar áður hafði hann róið sínar fyrstu vertíðir með Guðjóni Jónssyni frá Brekkubæ, sem fórst 1913 og var það að sögn hending ein að Danelíus réðist frá Guðjón þá vertíð. Árið eftir var hann orðinn formaður, aðeins 19 ára að aldri. Síðan hefur hann verið sjómaður óslitið, formaður á árabátum, opnum vélbátum og þilfarsbátum, en einnig skipstjóri á þilskipum skútualdarinnar. Oft hefur hann verið aflahæstur og ávallt farnast formennskan með ágætum. Það er fyrst á síðastliðnum vetri (1952), að hann hefur gefið frá sér sjómennskuna, enda fyllir hann nú senn sjötta tuginn, aldurskeiðið þegar flestir hafa fengið nægju sína af sjósókn og söltum bárum.
Mynd: Danelíus Sigurðsson og Sveindís Ingigerður Hansdóttir
Arngrímur Arngímsson er fæddur 1871 að Saxhóli í Neshreppi utan Ennis. Margt dreif á dag hans í æsku, og víða fór hann um og kynntist jafnt sjósókn sem landbúnaði. Hann var því allvel búinn undir lífið, er hann kvæntist og settist að á Öndverðarnesi, þar sem hann bjó fyrstu búskarparár sín. Kona hans er Jóhanna Magnúsdóttir frá Barmi í Skarðsstrandarhreppi. Þegar Guðmundur Hákonarson frá Stóru-Hellu drukknaði 1909, sóttir Arngrímur um jörðina ásamt 13 öðrum og fékk hana til ábúðar. Það varð upphaf að auðsæld hans. Stundaði hann þá sjóinn af atorku og dugnaði, var formaður í eigin útgerð og eignaðist brátt fleiri skip. Þótti hann sjósóknari mikill og heppinn. Kunni hann jafnan góð skil á að gæta fengins fjár. Árið 1922 yfirgaf hann sjómennskuna og fluttist til Hafnarfjarðar, en kunni ekki kaupstaðarlífinu. Keypti hann þá jörðina Landakot á Álftanesi og hefur búið þar síðan. Ber jörðin þess ljóst vitni, hver atorkumaður hann hefur verið, því að úr þessu smábýli hefur hann skapað höfuðból og margfaldað afrakstur jarðarinnar. Arngrímur er nú orðinn áttræður að árum, en ber svo vel aldurinn, að margur mundi ætla hann áratug yngri.