NESTÍÐINDI - FRÉTTABLAÐ Í NESHREPPI UTAN ENNIS
Nestíðindi var fréttablað sem útgáfufyrirtækið Hreggnasi stóð að. Fyrsta tölublað var gefið út í nóvember árið 1983 og það síðasta var gefið út í apríl árið 1985. Samtals voru gefin út sjö tölublöð sem öll hafa varðveist. Við eftirgrennslan ritstjóra vefjarins hafðist loks upp á blöðunum hjá einum af stofnendum Nestíðinda, Jóni Sigurðssyni á Gufuskálum og kann vefurinn honum bestu þakkir fyrir að hafa afhent vefnum öll blö'ðin.
Að útgáfufélaginu Hreggnasa stóðu Gunnar Már Kristófersson, Haukur Már Sigurðarson, Jón Sigurðsson, Kristinn Kristjánsson, Sigfús Almarsson og Vigfús Hjartarson. Ljósmyndarar blaðsins voru Ægir Þórðarson og Eysteinn Gunnarsson.
Seint á árinu 1984 kom Stefán Þór Sigurðsson á Gufuskálum inn í ritstjórnina en þá höfðu flutt í burtu Jón Sigurðsson sem var burðarárs blaðsins og Sigfús Almarsson. Jón starfaði þó áfram með ritstjórninni og var henni innan handar.
Blaðið var að mestu leyti unnið á skrifstofu Verkalýðsfélagsins Aftureldingar sem var til húsa í gömlu símstöðinni á Bárðarásnum, en félagið hafði fest kaup á því húsnæði og þar var myndaraðstaða til slíkra hluta.
Nestíðindi 1. tölublað 1. árgangur 1983
Nestíðindi 2. tölublað 1. árgangur 1983
Nestíðindi 1. tölublað 2. árgangur 1984
Nestíðindi 2. tölublað 2. árgangur 1984
Nestíðindi 3. tölublað 2. árgangur 1984
Nestíðindi 4. tölublað 2. árgangur 1984
Nestíðindi 1. - 2. tölublað 3. árgangur 1985
Nestíðindi 3. tölublað 3. árgangur 1985
Þetta er líklega síðasta tölublaðið af þessu ágæta blaði og það síðasta sem gefið var út með reglubundnum hætti í Neshreppi utan Ennis.
