Póstlisti
Prenta

Farsæll HU 12 í hrakningum.

Þann 17. janúar árið 1952 lenti vélbáturinn Farsæll HU 12 í miklum hrakningum er hann var í róðri um 10-12 sjómílur norður af Hellissandi, en þaðan var báturinn gerður út þá vertíðina.

M.b. Farsæll, sem var 15 tonna bátur, hafði farið í róður daginn áður í góðu veðri. Um nóttina versnaði veðrið og undir morguninn var komið ofsarok með miklum sjógangi. Skipverjarnir á Farsæli voru búnir að draga um þriðjung bjóðanna, er báturinn fékk á sig mikinn brotsjó sem velti honum heila veltu. Var báturinn lengi að komast á réttan kjöl aftur.


Eftir að báturinn hafði rétt sig gerði áhöfnin sér grein fyrir að miklar skemmdir höfðu orðið á honum við áfallið.
Öllu lauslegu hafði skolað fyrir borð og línurnar sem búði var að draga höfðu flækst í loftnetinu og slitið það að hálfu niður. Mikill sjór hafði komið i bátinn og vélin stöðvaðist. Allar lestarlúgur voru brotnar, svo og rúður í stýrishúsi,  lúgukappi, vélarhúskappi, skjólhurð og öldustokkur. Þá höðu rafgeymarnir einnig kastast til og mölbrotnað þannig að báturinn var rafmagnslaus. Um borð í Farsæli var fimm manna áhöfn og sakaði hana ekki við áfallið.

Hóf áfhöfnin þegar  björgunaraðgerðir. Vitað var um nálæga báta en þar sem báturinn var án fjarskiptasambands, brugðu skipverjar á það ráð að útbúa neyðarblys. Seglabúnaður var um borð í bátnum og settu skipverjar upp stórseglið og sigldu bátnum áleiðis til lands. Önnur segl urðu þeir að nota til að byrgja lestina og verja hana sjó. Sóttist siglingin hægt, einkum fyrst í stað meðan báturinn var þungur af sjó.

Eftir fimm klukkustunda stanslausan austur hafði tekist að þurrausa bátinn og var þá farið að eiga við vélina. Heppnaðist að koma henni í gang og var bátnum siglt inn undir Hellissand en þá bilaði vélin að nýju og tók um klukkustund að lagfæra hana. Þegar báturinn kom inn að Hellissandi var þar haugasjór og lending því áhættusöm. En skipverjar áttu ekki margra kosta völ, þar sem olíubirgðir bátsins voru á þrotum og engin leið að leita annarsstaðar hafnar. Skipstjórinn tók þá ákvörðun við svo búið að reyna lendingu.
Tókst lendingin giftusamlega og var báturinn kominn til hafnar á Hellissandi klukkan sjö um kvöldið.

Skipstjóri á m.b. Farsæli var Þórhallur Árnason. Þótti hann og skipshöfn hans hafa sýnt mikinn dugnað og karlmennsku í þessum raunum.