Póstlisti
Prenta

25. apríl 2001 - Guðbjartur SH 45 strandar

Metaflabáturinn Guðbjartur SH strandar við Brimnes. Um miðjan dag í gær sigldi trillubáturinn Guðbjartur SH 45 upp í Brimnesið sem er rétt vestan við Hellissand.

„Ég var í koju og vissi ekki fyrr en báturinn tók harkalega niðri en við vorum á landleið úr línuróðri,“sagði Vífill  Marinósson, annar skipverjanna á Guðbjarti.

„Það voru margir bátar í kringum okkur og einn þeirra, Kristín SH 377, tók okkur í tog svo að við losnuðum af strandstaðnum. Við fórum síðan báðir yfir í hann, sagði Vífill“.

Þegar komið var á móts við Rif hvolfdi bátnum og hann fylltist af sjó. Þá var björgunarbáturinn Björg, sem er ávallt til taks í Rifshöfn, kominn á vettvang. Dró Björg bátinn til hafnar en þá var kjölurinn aðeins upp úr sjónum.

Guðbjartur SH er mjög mikið skemmdur og var hífður upp til skoðunar. Báturinn hefur stundað línuveiðar í vetur.
Hafa þeir félagar Eggert Bjarnason skipstjóri og Vífill Marinósson fiskað með afbrigðum vel og komið með hvern  metróðurinn eftir annan. Hvorugum þeirra varð meint af þessu slysi.