Póstlisti
Prenta

Margar forvitnilegar og spaugilegar fréttir eru eflaust til frá fyrri tíð.  Á þessari síðu verður leitast við að safna þeim saman í tímaröð.  Ef þú átt gamalt blað eða hefur rekist á gamlar fréttir, greinar eða vísur um eða frá Neshreppi utan Ennis væri gaman að fá birtingu á þeim hér.  Hægt er að senda slíkt efni eða ábendingu um hvar það er að finna á haukurmar@simnet.is eða til Haukur Már Sigurðarson, Brunnar 18, 450 Patreksfjörður.

Úr fréttabréfi Sandarfélagsins 1989
Þorrablótið fellur niður. Annað árið í röð féll þorrablót Ungmennafélagsins Reynis niður. Framan af stóð í stappi við sýslumannsembættið vegna vínveitingaleyfis. Fór þó svo um síðir eftir að klögumál höfðu gengið á víxl að hið háa embætti lét af synjuninni og leyfið var veitt. Ekki fór þó svo að síþyrstir Sandarar gætu rennt veigunum niður á tilætluðum degi og er þar meðal annars veðri um að kenna. Það er kannski kaldhæðni að veðrið sem aldrei varð, skuli hafa orðið til þess að þorrablótið \\\"aldrei varð\\\". En ekki er öll von úti enn. Hugmyndin er að halda Góugleði á páskastoppinu og væntanlega verður þorstinn því slökktur áður en vora tekur.

Mikill snjóþungi. Úr fréttbréfi Sandarfélagsins 1989
Ekki hið einasta hefur veðrið bitnað á sunnanmönnum einum saman, heldur hafa snæfellingar mátt standa í snjómokstri daga sem nætur. Þungfært hefur verið um götur Hellissands það sem af er vetri. Snjómoksturinn hefur orðið tilefni deilna um hver skuli og hver skuli ekki sitja að mokstrinum. Á staðnum eru tvö tæki misjafnlega brúkleg til þessara hluta að því er fróðustu menn segja. Annað tækið er í eigu Snæbjörns Kristóferssonar, sem um áraraðir hefur mokað allt sem moka hefur þurft á Sandi til þessa. Hitt tækið er í eigu Þorgeirs Árnasonar í Rifi. Þykir mönnum sem Þorgeir hafi borið skarðan hlut frá borði í kvótamáli þessu.

Erlent vinnuafl. Úr Fréttabréfi Átthagafélags Sandara 1989
Óvenju mikið er um erlent vinnuafl í Neshreppi utan Ennis þetta árið. Má segja að þar kenni allra grasa. Norrænir menn sem og neðar af kringlunni keppast nú við að safna í sjóði svo þeir megi hamingjuna höndla í framtíðinni. Hjá Kristjáni Guðmundssyni hafa nú í haust stundað beitningu menn af pólsku bergi brotnir. Ekki mun þó í deiglunni að stofna neitt útibú frá Samstöðu þeirra Pólverja, því allir munu þeir í sátt við yfirvöld þessa lands, svo og við oddvita og sveitarstjórn Neshreppinga.

Flensan. Úr Fréttabréfi Átthagafélags Sandara 1989
Ekki hafa Sandarar farið varhluta af flensufaraldri þeim er lagt hefur fólk umvörpum síðan um áramót. Svo rammt hefur að kveðið á Sandi að erfiðleikum var bundið á tímabili að halda uppi eðliegri vinnu og skólahaldi.

Póstur og sími. Úr Fréttabréfi Átthagafélags Sandara 1989
Kristín Karlsdóttir hefur verið ráðin stöðvarstjóri Pósts og síma á Hellissandi. Kristín tók við starfinu úr höndum Sveinbjörns Benediktssonar um síðustu áramót. Eins og menn eflaust flestir vita, hefur Sveinbjörn gengt starfi þessu um áratuga skeið. Ekki hefur Sveinbjörn yfirgefið pósthúsið ennþá og sýnist mönnum lítið fararsnið á honum. Margir koma til með að sakna Sveinbjarnar á \\\"Stöðinni\\\" og víst á hann þakkir skyldar fyrir ötullt starf í gegnum árin. Þökk sé þér Sveinbjörn, og innilega til hamingju Kristín Karlsdóttir.

Úr fréttablaðinu Sandur 1985.
Eftirfarandi er úr fréttablaði sem þeir Eðvarð Ingólfsson og Michael Sigþórsson stóðu að. Þeir voru aðeins fimmtán ára gamlir þegar þeir gáfu blaðið út. Blaðið var vélritað og teiknað og síðan ljósritað í sprittfjölrita. Gróði Sands: Eftir því sem okkur hefur borist til eyrna, virðist fólk hafa mikinn áhuga á að vita hve mikill gróði er af sölu Sands. Hví dettur fólki í hug að spyrja um gróða, hví spyr það ekki heldur um hve tapið er mikið? Ef blaðið væri ekki unnið af áhugamennsku einni, þá væri stórtap á því. Hvernig getur fólk látið sér detta í hug að nokkurt blað geti þrifist í litlu byggðarlagi? Mikið kvenmannshallæri á Sandi. Samkvæmt tölum um íbúafjölda í Neshreppi fyrsta desember 1975, frá sveitastjóranum, kemur í ljós að karlmenn voru 44 fleiri en kvenmenn. Með þessu framhaldi, virðist eina lausnin vera sú að pillan verði bönnuð til þess að geta staðist undir samkeppni við Ólsara, sem eru 550 fleiri en við, en við vorum fleiri en þeir um 1930. Ástæðn fyrir þessari fjölgun í Ólafsvík, er líklega sú að kvenfólk þar er afkastameira en konur hér. SANDUR lítur þessi mál mjög \\\\\\\"alvarlegum augum\\\\\\\" Óhapp í skólanum. Þann 30. okt. kom fyrir óhapp í skólanum, er krakkarnir voru í leik er nefnist reiptog, í frímínútunum. Bundu þau band við símastaur og toguðu svo í. Var bandið ekki nógu vel hnýtt í staurinn og losnaði það með þeim afleiðingum að krakkarnir duttu flest afturfyrir sig og í götuna. Skrámaðist einn drengur á hendi, annar fékk gat á höfuðið og er ekki alveg vitað hvort hann hafi höfuðkúpubrotnað.