Bárðarbúðarböðlarnir.
Þessi hljómsveit var og er gleðisveit sem spilar eingöngu opinberlega í gleðskap meðlima, hún er enn til en hefur haft hægt um sig í nokkur ár. Árið 1982 gaf hljómsveitin út hljómplötuna Afurðir og var hún tekin upp á Skólabraut 1 á Hellissandi (Ásgaður). Þá voru í hljómsveitinni; Pálmi Almarsson, gítar, víbrafónn og söngur, Vigfús Kr. Hjartarson, gítar, blokkflauta og söngur, Sigfús Almarsson, munnharpa og bongótrommur og Kristinn Kristjánsson sem rappaði eitt lag. Diter Roth fjöllistamaður, (Afurðir - Bárðarbúðarböðlarnir - Roth - Verlag 1982), gaf Afurðir út í um 100 eintökum og er hún í dag mjög eftirsótt af söfnurum og hefur hennar verið getið í að m.k. einn bók, svo hér er um merkan grip að ræða. Mottó Böðlana eru: hopp er hollur hlátur og þar sem er hljóðfæri og einn meðlinur sveitarinnar er á staðum þar eru Böðlarnir að spila.
Bárðarbúðarböðlarnir
|
|
|
|
|
|
|