Leturstærð

Þann 16-20 maí 2007 fóru Bárðarbúðarböðlarnir vestur á Arnarstapa til að taka upp 11 lög, upptökustjóri var Kristinn Sigþórsson. Umf. Trausti lánaði Böðlunum félagsheimilið Snæfell sem breytt var í upptökuheimili. Tilgangurinn var að taka upp heila plötu sem kemur til með að heita Drimbur, en verður ekki gefin út á almennum markaði. Þarna er að finna lög eins og; Þar búa Sandarar, Gonsavísur, Hvað ert þú að gera Hellissandur, Verkakona og fleiri lög sem tengjast vestur á Sand, þó allt í breyttum útgáfum m.v. það sem margir þekkja. Þeir sem skipuðu Böðlana að þessu sinni voru: Ægir Þórðarson (gítar, bassi og munnharpa), Sverrir Pálmason (gítar), Pálmi Almarsson (bassi, gítar og söngur), Kristinn Sigþórsson (trommur) og Loftur Bjarnason (bassi, eitt lag). Ekki er búið að klára upptökurnar og verður það gert síðar. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir teknar í upptökuheimilinu.
Bárðarbúðarböðlarnir í hljóðveri
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|