Póstlisti
Prenta

Blikás.

Hljómsveitin Blikás (eða Blikkás) var sett á laggirnar um eða í kringum 1980-1981 samkvæmt minni og í hljómsveitinni voru, Þorkell Cýrusson (Keli Cýra á gítar, Þórarinn Steingrímsson (Steingríms löggu) á gítar, Guðmundur H. Bragason (Braga löggu) á trommur og Þórarinn M. Friðgeirsson (Tóti Fidda) á bassa .

Hljómsveitin var með stífar æfingar í skólanum fyrir “gigg” sem sett var upp í  sjómannagarðinum og “kunni”  hljómsveitin heil 11.lög ef minnið er rétt. Þetta kvöld ringdi talsvert í garðinum þannig að geimið var flutt inní Röstina og endaði þetta sem skemmtilegt partí þó sjálfsagt hafi allir verið orðnir hundleiðir á þessum 11.lögum en sem betur fer voru á svæðinu stórtónlistamenn af staðnum sem komu okkur guttunum til bjargar og gripu í hljóðfærin.

Þetta reyndist eina gigg sveitarinnar sem lagði upp laupana fljótlega eftir þetta og hefur enginn af hljómsveitarmeðlimum gert stórafrek á tónlistarsviðinu eftir þetta nema Þorkell Cýrusson sem allir sandarar og nærsveitungar þekkja.

Tóti Fidda náði þó að leika á einu balli með skólahljómsveit í Menntaskólanum á Laugarvatni fyrir jól 1981