Unglingahljómsveitin Blundt
Á Sandi starfaði unglingahljómsveit á árunum 1994-1995, þessi hljómsveit hét Blundt. Þeir sem voru í henni voru:
- Hans Ísfjörð Guðmundsson gítar,
- Hjalti Már Baldursson bassa og
- Sævar Freyr Reynisson á trommur.
Þeir spiluðu hægfara gítarrokk og frumsamin lög. Þeir spiluðu í félagsmiðstöðinni Afdrep og á nokkrum jólaböllum, og hituðu upp fyrir Bros nokkrum sinnum.
Þessir strákar náðu þeim áfanga að lenda í 4. sæti í músiktilraunum í Tónabæ 1.
apríl 1995.
(Til gamans spilaði faðir Hans Ísfjörðs með hljómsveitum úr Ólafsvik, Gvendur Matt og allir þekkja nú Rúnar trommara úr Bít sem er faðir Sævars)
