Hljómsveitin Bros:
Árið 1991 nánar tiltekið í desember komu þrír félagar saman og léku sér á hljóðfærin sín. Þetta voru þeir Loftur Vignir Bjarnason, Þorkell Cýrusson og Örn Arnarson. Æfð voru nokkur lög, aðallega okkur til skemmtunar. Eitthvað vantaði þó því engar voru trommurnar þannig að við leituðum til Reynis Rúnars Reynissonar sem Örn vissi um og að sonur hans ætti trommur sem Rúni var mikið að fikta í. Hann var tilbúinn að leggja okkur lið og mætti til æfinga inn í Rifi þar sem æfingahúsnæðið var. Þetta var á Þorláksmessu nánar tiltekið. Um svipað leiti gekk G. Sirrý Gunnarsdóttir í hljómsveitina og tók að sér söng með miklum myndarskap. Hljómsveitin æfði stíft í viku og spilaði á jólaballi Kvenfélagsins á Hellissandi. Nafn hljómsveitarinnar kom þannig til að móður Rúnars (Jóna í Skjaldatröð) var á fyrrnefndu jólaballi og heyrði þar í okkur og fannst við hafa mjög gaman af því sem við vorum að gera, sífellt brosandi þannig að hún taldi nafnið Bros vel við hæfi sem úr varð. Fyrsti dansleikurinn sem heitið getur að hljómsveitin hafi spilað á var síðan Kúttmagakvöld fyrir eldri borgara í Snæfellsbæ í lok janúar 1992. Fyrstu útgáfu hljómsveitarinnar skipuðu eftirfarandi: G. Sirrý Gunnarsdóttir söngur, Loftur Vignir Bjarnason bassi, Reynir Rúnar Reynisson trommur og söngur, Þorkell Cýrusson gítar og söngur og Örn Arnarson hljómborð og söngur. Sirrý hætti í hljómsveitinni um áramótin 1992/1993 þegar hún fór í barneignafrí. Eftir það tók Þorkell við aðalsönghlutverkinu. Hljómsveitin fór í hljóðver í Reykjavík um sumarið 1992 og tók upp 11 lög eftir Þorkel Cýrusson sem gefin voru út á kasettu. Upplagið seldist upp og hefur ekki verið ráðist í að fjölfalda meira enn en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Eitt lag af þessum upptökum var síðan endurupptekið og gefið út á safndiskum Lagasafnið 3. Hljómsveitin starfaði í nokkur ár með ýmsum mannabreytingum. Þeir sem komu við og spiluðu með okkur eða sungu voru: Ægir Hrólfur Þórðarson gítar og Svanfríður Kristjánsdóttir söngur (nokkrar æfingar). Örn hætti um tíma og síðar Reynir Rúnar. Þá var einsýnt að hljómsveitin gæti ekki starfað lengur og var hún lögð niður 1997.
Hljómsveitin Da Capo síðar Extra:
Eftir að hljómsveitin Bros hætti þá héldu Þorkell og Loftur saman samstarfinu og stofnuðu ásam Kristni Sigþórssyni, Ægi Þórðarsyni og Fanney Vigfúsdóttur hljómsveitina Da Capo. Kristinn og Ægir höfðu áður starfað saman í hljómsveitinni Venus. Þetta var snemma árs árið 1998. Eftir tvo dansleiki var ákveðið að breyta nafni hljómsveitarinnar í Extra þar sem nafnið þótt óþjállt og erfitt að muna. Hljómsveitin starfaði með miklum þrótti rúmlega eitt ár en síðustu mánuðina þá yfirgaf Ægir hljómsveitina og Örn Arnarson kom inn í stað hans og lék með okkur. Kristinn og Fanney höfðu þá ákveðið hvor í sínu lagi að flytja á höfuðborgarsvæðið þannig að hljómsveitin lagði sjálfkrafa upp laupana.
Hljómsveitin Bít:
Eftir að Extra hættu seinni hluta ársins 1999 ákváðu Þorkell, Loftur og Örn að endurvekja hljómsveitina Bros í sinni upprunalegu mynd. Rúnar var strax til en Sirrý átti erfiðara um vik þannig að sú hugmynd fór út um þúfur. Þorkell hafði þá heyrt í Sigurbjörgu Hilmarsdóttur syngja þegar hann lék undir hjá henni á kvenfélagsfagnaði. Það varð úr að bjóða henni söngkonuhlutverkið í hljómsveitinni sem hún þáði. Ekki þótti okkur rétt að nota Bros nafnið þar sem ekki tókst að endurvekja hljómsveitina í upprunalegri mynd. Því fékk hljómsveitin nafnið Bít og starfar enn þann dag í dag undir því nafni (2007 þegar þetta er ritað).
Hljómsveitin Bít
|
|
|
|
|
|
|