Póstlisti
Prenta

Diamonds

Þetta mun vera ein fyrsta hljómsveit sem eingöngu var skipuð heimamönnum. Kristinn Haraldsson (Diddi Halla) spilaði á nikku, Alfreð Örn Almarson á gítar, Baldur Guðni Jónsson á trommur og Vilhjálmur Hafberg var söngvari. Diddi spilaði með í gömlu dönsunum en yfirgaf sviðið þegar bítlið tók við. Síðar urðu mannabreytingar og tveir Ólsarar komu inn, Páll Mortensen á bassa og Hilmar Ólafsson á gítar og varð þetta þá ekta popphljómsveit. Þessi útgáfa hljómsveitarinnar gerði allt brjálað á útidansleik á Sjómannadaginn 1967 sem þá var haldinn inn á Drimbum sjá myndir hér að neðan. Til eru lifandi myndir af þessari fyrstu útgáfu, sjá nánar lifandi myndir á síðunni.    

Diamonds

Diamonds