Nú-jæja:
Árið 1972 stofnuðu Pálmi Almarsson, Eggert Sveinbjörnsson og Haukur Már Sigurðarson skólahljómsveit sem nefnd var Nú-jæja (þótti ótrúlega frumlegt nafn á þeim tíma). Fyrsta "giggið" var á skólaballi í gamla skólanum þar sem hljómsveitin tók tvö lög, annað er gleymt en hitt var lag eftir Pálma við Passíusálm # 51, eftir Stein Steinar, í pásu hjá skólahljómsveit úr Ólafsvík sem hét Lexía. Hljómsveitin þótti standa sig með prýði, enda Eddi frá Hraunprýði. Allavega koma strákarnir frá Ólafsvík (Siggi Laugu, Sveinn Elinbergs, Örn Guðmunds, Valur Hösk og Dúddi) að máli við okkur á eftir "giggið" og fannst flott að við værum með frumsamið lag. Fljótlega kom Þröstur Kristófersson inn í hljómsveitina sem söngvari. Þessi útgáfa spilaði á jólaballi Kvenfélagsins (sjá mynd) og á áramótadansleik Umf. Reynis (án þess að hafa getu eða lagaval til þess), þegar rándýru skemmtikraftarnir að sunnan komust ekki vegna veðurs, (til eru lifandi myndir af hljómsveitinni á æfingu fyrir kvöldið). Til þess að gera okkur þetta auðveldara og vera með gömlu dansana var Benedikt Jónsson, vigtarvörður, fengin til þess að spila á nikku með okkur. Nokkrum vikum seinna fékk Benni sér Yamaha orgel og lesley og gekk formlega í hljómsveitina eftir áramótin, 1973/1974, en Haukur hætti í kjölfarið og hefur ekki spilað opinberlega síðan að því best er vitað og Þröstur hætti fljótlega líka (vegna ágreinings um lagaval og eignarhalds á græjum (grín)).
Útrás verður til:
Þegar hér var komið sögu var breytinga þörf, ekki var lengur hægt að láta orgelið sjá um bassaleikinn svo nú kom í góðar þarfir að hafa kynnst þessum strákum frá Ólafsvík, á skólaballinu í gamla skólanum, og þangað var leitað. Nafni hljómsveitarinnar var breytt í Útrás og hana skipuðu í byrjun: Pálmi, Eddi, Benni og bassaleikarinn úr Lexíu, Sigurður Egilsson (Siggi Laugu). Þessi útgáfa spilaði um hverja helgi í Röstinni og víða, m.a. á Þjóðhátíð Snæfellinga á Búðum 1974 (sjá mynd). Einn daginn mætti Benni með stór-gítarleikar á æfingu í Röstinni: Ægi Þórðarson. Ekki vorum menn á eitt sáttir með gaurinn í byrjun, en hann gat spilað og kunni öll Stoneslögin og var því ráðinn (Pálmi réði því enda Stónsari í gegn). Þessi útgáfa spilaði víða um land, á Nesinu, á Vestfjörðum, Húsavík, Hrísey og víða og tók sér frí haustið 1976. Frá árinu 1994 hefur hljómsveitin komið saman af og til og spilað á Sandaragleði, á góðgerðardansleikum á Hellissandi og stórafmælum meðlima. Benedikt Jónsson lést árið 1999, fyrir aldur fram. Fyrir nokkrum árum kom Magnús Stefánsson (Gunnu Jóa löggu) í hljómsveitina og hefur spilað með henni síðan, enda traustur vinur þar á ferð.
Tvær útgáfur af Útrás voru gerðar út frá Ólafsvík í kringum 1980 og vorum Pálmi og Siggi þeir einu úr gömlu útgáfunni, hinir frá Ólafsvík, Ameríku og víða, svo þetta telst ekki hljómsveit frá Hellissandi.
Til eru lifandi myndir af þessu hljómsveitum, sjá lifandi myndir hér á síðunni.
Útrás
Hljómsveitirnar Nú jæja og Útrás
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|