Leturstærð

Skáldið frá Bárðarbúð
F. 17.07. 1925 - D. 04.02. 2004
Á undirsíðu eru ýmsir textar og ljóð eftir hann, um fólkið á Hellissandi og þorpið.
Diddi samdi texta og skemmtiatriði fyrir nánast öll þorrablót sem haldin voru á vegum Umf. Reynis á Hellissandi frá árinu 1959 allt til ársins 1985, með nokkrum undantekningum þó. Einnig samdi Kristinn söngtexta, ljóð og gamanmál fyrir ýmsar uppákomur á Hellissandi á sama tíma.
Hann sendi frá sér tvær bækur, ljóðabókina Úr höll birtunnar, bækurnar Veröld stríð og Vikurnám undir Jökli, um æskuár hans og samtíðarmanna sinna og atvinnumál.
Mikið af efninu er týnt en margt er í höndum Pálma Almarssonar og mun það birtast hér eftir því sem tími hans til að sinna vefnum leyfir.
Ef einhver lumar á gömlum handritum af textum eða leikritum eftir Didda frá fyrri tíð væri vel þegið að fá afrit af því til birtingar hér. Netfangið er palmi@fasteignamidlun.is eða haukurmar@simnet.is. Gamlar ljósmyndir frá þorrablótum eða öðrum skemmtunum væru einnig vel þegnar.
Allt efni sem birt er á þessari undirsíðu er höfundaréttarvarið og má með engum hætti afrita eða endurbirta nema með leyfi rétthafa.
Rétthafi höfundaréttar er Pálmi Almarsson