Leturstærð

Þessar vísur voru samdar með dags fyrirvara þar sem skemmtikraftur frá Ólafsvík forfallaðist á síðustu stundu. Á þessum tíma vann Diddi við bókhaldsstörf hjá Hraðfrystihúsi Hellissands, hjá Rögnvaldi Ólafssyni og mun Skúli Alexandersson hafa fengið Didda til að taka að sér að skemmta á Þorrablótinu í gamla Samkomuhúsinu. Þegar textinn var klár prófaði Diddi hann á Ólafi, synir Rögnvaldar, þá 5 ára gömlum, og þar sem hann hló á réttum stöðum var hann viss um að þetta myndi virka á Sandarana.
Þessar frægu vísur voru fluttar í gamla Samkomuhúsinu af Ólafi Magnússyni, ekki er vitað hver samdi lagið við þær en allt eins víst að það hafi verið Diddi sjálfur. Lagið kom út á hljómplötu með Bárðarbúðaböðlunum árið 1982.
Þessar vísur voru til margra ára flutta í upphafi hvers Þorrablóts og héldu söngvarar á spjöldum sem mynduðu orðið ÞORRI og viðkomandi ár, t.d. ÞORRI 1970. Ekki er vitað hvenær þessi siður var tekin upp en sennilega var það 1970.
Þetta fallega ljóð við lagið Erla góða Erla var flutt af Ólafi Magnússyni og Steinunni Geirdal.
1974: Nú höldum við til Hellissands.
Diddi setti leikritin sem hann samdi fyrir þorrablótin gjarnan þannig upp að aðkomumaður/kona kom til Hellissands og sá hlutina með sínum augum. Þannig nálgaðist Diddi sýn hins ókunnuga á líf okkar sem þar bjuggum og gat með því móti horft með nokkuð spaugilegum hætti á það sem fyrir augum bar og endursagt í gamansömum tón. Þetta ljóð ber m.a. vitni um það.
Stebbubær (Eðvarðshús) stóð við hliðina á Lárusarhúsi við Skólabraut á Hellissandi. Húsið hefur orðið Didda að yrkisefni vegna þess áhuga sem Skúli Alexandersson hafði á verndun þess og hugsanlega vegna þess að um þetta leyti gerðu nokkur ungmenni atlögu að húsinu og gerðu tilraun til að jafna það við jörðu, sem tókst reyndar ekki, þótt húsið sé horfið í dag.
Ekki er vitað hvaða ár þessi bálkur var fluttur:
Þessi bálkur hefur væntalega verið fluttur á þorrablóti á Hellissandi. Þó gæti verið að hann sé frá árshátíð Sandarafélagins í kring um 1990.