DAGSKRÁ SANDARAGLEÐINNAR SMELLIÐ HÉR
Skemmtidagskrá í Röstinni á föstudagskvöld.
Föstudagskvöldið 11.07.08. verður haldin skemmtidagskrá til styrktar byggingu Björgunarsveitarinnar Lífsbjargar í félagsheimilinu Röst Hellissandi. Húsið opnar kl.22.00 og dagskrá er til klukkan 02.00. Flutt verður grín og gamanmál um menn og málefni bæjarfélagsins sem flutt hefur verið á síðari árum á ýmsum uppákomum þorrablótum og öðrum skemmtunum.
Upplagt tækifæri fyrir þá sem vilja rifja upp eða skyggnast í hvernig Keli og Þröstur hafa gert grín af uppátækjum, heppni og óheppni margra þekktra Sandara síðustu árin. Allt sett saman í skemmtilega söngtexta undir vinsælum og fjörugum lögum flutt af heimafólki og ekki spillir að um leið styrkið þið byggingu björgunarsveitarinnar. Að lokinni skemmtidagskrá mun Guðrún Lára frá Blómsturvöllum halda uppi fjörinu. Allur aðgangseyrir rennur beint til Björgunarsveitarinnar sem sér um dyravörslu og innheimtu aðgangseyris sem er krónur 1.500. Öll vinna hljómsveitar og skemmtikrafta er sjálfboðavinna og aðstaða í Röstinni er frí fyrir verkefnið.
Við lofum ykkur frábærri skemmtun.
Mætið og styrkið gott málefni.
Nefndin
Markmiðið er að allir eigi ljúfa kvöldstund með léttu gríni þar sem gestir, brottfluttir og búandi auk nágranna okkar á Nesinu geta átt saman góða kvöldstund.
Aldurstakmark er 18 ár.
Vínveitingar á staðnum.
Öllum þeim sem vilja birta efni tengdt næstu Sandargleði er velkomið að senda póst á hellissandur@hellissandur.is og verður það birt á vefnum.
Þeim árgöngum sem ætla að hittast er bent á að þeim er velkomið að fá sérstaka síðu fyrir sinn árgang, þar sem hægt er að birta tilkynningar og myndir.
hellissandur.is hefur ákveðið að standa fyrir samkeppni um bestu árgangasíðuna og verður sérstök viðurkenning veitt þeim árgangi sem verður með bestu síðuna þegar Sandargleðin fer í hönd.
|
||
| Fyrri | 12/12 | |
