Leturstærð

Hellissandi - Hátíðahöld sjómannadagsins fóru fram með hefðbundnu sniði þetta árið.
Á laugardeginum 6. júní hófust hátíðahöldin við Rifshöfn með kappróðri og koddaslag að venju.
Daginn eftir hófust hátíðahöldin síðan með sjómannamessu í Ingjaldshólskirkju þar sem kirkjukórinn söng en í honum er mikill fjöldi sjómanna úr byggðinni.
Sjómennirnir Reynir Axelsson stýrimaður og Hlynur Sigurbergsson háseti lásu ritningarlestra. Sóknarpresturinn prédikaði.
Í sjómannagarðinum á Hellissandi var aldraður sjómaður síðan heiðraður, en það er fastur liður í hátíðahöldum dagsins. Það var Sigurður Kristjónsson skipstjóri sem annaðist þann dagskrárlið og kynnti sjómanninn og rakti sjóferðasögu hans. Að þessu sinni var heiðraður Almar Jónsson, brottfluttur Sandari, en hann var einmitt áratugum saman með Sigurði Kristjónssyni á Skarðsvíkinni SH meðan hún var eitt mesta aflaskip í landinu. Stóð það því Sigurði nærri að gera grein fyrir Almari.
Að lokinni heiðrun bað Sigurður Kristjónsson alla þá sjómenn sem heiðraðir hafa verið áður og viðstaddir voru hátíðahöldin að stíga á svið ásamt mökum og var það fríður hópur. Mátti þar sjá margar gamlar kempur úr glímunni við Ægi.
Að lokum fór fram verðlaunaafhending fyrir sigur í kappróðri og koddaslag. Þá tilnefndi Hallgrímur Guðmundsson formaður Ungmennafélagsins Reynis fyrir hönd stjórnar félagsins íþróttamann ársins og var það að þessu sinni Jón Oddur Halldórsson íþróttagarpur, sem þrátt fyrir fötlun sína hefur náð ótrúlegum árangri á ýmsum sviðum og stefnir hátt.