
Prenta

BJÖRGVIN MAGNÚSSON
Björgvin Magnússon (Beggi) var fæddur á Þóroddsstöðum í Vestur-Húnavatnssýslu 31. maí 1920. Hann lést 25. janúar 2000.
Móðir Begga var María Kristrún Ketilsdóttir, f. 3. júní 1897, d. 17.júlí 1932, frá Stakkabergi á Hellissandi, og faðir hans var Magnús Árnason, f. 15. september 1890, d. 26. febrúar 1978 frá Kúvíkum á Ströndum, síðar á Gjögri og í Reykjarfirði.
María móðir Begga giftist nokkru síðar Eiríki Kúld Andréssyni, frá Bjarnarhöfn í Helgafellssveit, f. 3. júlí 1903 d. 3. desember 1932. Þau eignuðust:
Hinrik, f. 30. september 1921, d. 15. október 1992,
Jón Þorstein, f. 4. júlí 1927,
Kristin Breiðfjörð, f. 21. október 1928,
Sólveigu Guðbjörgu, f. 28. ágúst 1930.
Hálfsystir Begga, samfeðra er Kristín Herdís, f. 13. maí 1933
Beggi ólst upp hjá ömmu sinni og afa, þeim Kristínu Þorvarðardóttur og Katli Björnssyni á Stakkabergi á Hellissandi.
Á heimilinu voru einnig móðurbræður hans, þeir Böðvar og Gísli. Eftir fráfall Ketils og síðar Kristínar héldu þeir Böddir, Gísli og Beggi heimili saman.
Beggi stundaði sjómennsku sem aðalstarf og lenti oft í kröppum sjó. Hann var alla tíð eftirsóttur dugnaðarmaður.
Síðast á starfsferli sínum vann hann í fiskvinnu í Jökli hjá Skúla Alexanderssyni, en þeir voru bræðrasynir.
Árið 1940 byggði Beggi ásamt þeim Gísla og Böðvari, nýtt hús sem kallað var Þórsberg en það hús stendur enn, en bærinn á Stakkabergi var rifinn.