Póstlisti
Prenta

HAUKUR VIGFÚSSON


Haukur Vigfússon frá Gimli, Hellissandi, fæddist 26. desember 1913. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 20. apríl  1995. Kona hans er Steinunn Jóhannsdóttir, f. 19.2. 1917, kennari frá Löngumýri í Skagafirði. Þau eignuðust fjögur börn:
1) Jóhann, d. 1986, kvæntur Önnu Aradóttur og eiga þau þrjár dætur og fjögur barnabörn.
2) Kistinn, kvæntur Helgu Friðriksdóttur og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn.
3) Sigurlaug, gift Sigurjóni Kristóferssyni og eiga þau tvær dætur.
4) Vigfús, kvæntur Helgu Valdimarsdóttur og eiga þau fjögur börn. Haukur stundaði sjómennsku meiri hluta ævinnar.
Haukur og Steinunn bjuggu fyrst á Hellissandi en stofnuðu svo nýbýlið Lauftún út úr Löngumýri. Þau fluttu svo aftur til Hellissands uppúr 1960 og bjuggu þar þangað til árið 1990 að þau fluttu að Hrafnistu í Reykjavík.