Prenta

SIGURBJÖRN HANSSON
Sigurbjörn Hansson fæddist að Ytri-Tungu í Breiðuvík 24. nóvember 1919.
Hann lést á heimili sínu, Selhóli á Hellissandi, hinn 11. mars 2001.
Foreldrar hans voru Þóra Sigurbjörnsdóttir og Hans Bjarni Jensson.
Sigurbjörn var næstyngstur sjö systkina.
Sigurbjörn kvæntist 30. júlí 1954 Önnu Magnúsdóttur, f. 30. október 1926.
Börn þeirra eru: 1) Erla, maki Ársæll Ársælsson,
2) Ágústa, maki Hjörvar Garðarsson,
3) Guðbjartur, maki Sigríður Karlsdóttir,
4) Jens, ókvæntur,
5) Þóra, maki Jón Snæland,
6) Magnús, látinn,
7) Guðbjörg, maki Ægir Þórðarson,
8) Sigurpáll, maki Gréta Hrönn Ebenesersdóttir,
9) Hans Bjarni, maki Fjóla Jóhannsdóttir,
10) Anna Birna, maki Björn Halldórsson.
Dóttir Önnu er Guðfinna Hjálmarsdóttir, maki Grímur Ingólfsson.
Sigurbjörn var lengst af verkamaður og bóndi á Selhól.