Póstlisti
Prenta

Sigurður Árnason

heiðraður sjómaður 2007

Sigurður fæddist að Kambi í Strandasýslu 8. mars 1927 en ólst upp í Kolbeinsvík við öll almenn störf, þar á meðal sjóróðra frá 12. ára aldri. Síðan vann hann í síldarverksmiðjunni í Djúpuvík um árabil.

Árið 1958 flutti Sigurður til Skagastrandar og starfaði þar sem skipstjóri, fyrst á vélbátnum Auði djúpúðgu og síðan á Vísi HU.

Sigurður hóf búskap á Skagaströnd með fyrrverandi eiginkonu sinni Guðbjörgu Lárusdóttur frá Kálfshamarsvík á Skagaströnd og eignuðust þau sex börn sem eru Bryndís sem nú er látin, Haukur Már, Heiðrún, Auður Hjördís, Bragi Hlíðar og Erla Björk.  Fyrir átti Sigurður einn son, Jón Árna sem ólst upp að Skerðingsstöðum á Reykhólum.

Í nóvember árið 1967, flutti Sigurður ásamt fjölskyldu sinni til Hellissands, þar sem hann hóf störf hjá Strandamanninum Skúla Alexanderssyni í fiskvinnslunni Jökli. Hjá Skúla vann Sigurður þar til hann hóf störf við beitningu og sjóróðra.  Þegar Sigurður flutti til Hellissands skyldi hann eftir á Skagaströnd bátinn Flosa, sem hann gat ekki tekið með sér um haustið, en hann fékk hann sendan vestur um vorið.  Sigurður stundaði sjóróðra á Flosa ásamt eiginkonu sinni Guðbjörgu um hríð, sem jafnframt stundaði beitningu með honum í áraraðir.

Sigurður gerði út á grásleppu frá Rifi ásamt Leifi Jónssyni og unnu þeir brautryðjendastarf við að koma að nýju af stað grásleppuveiðum og vinnslu á Rifi, en hún hafði legið niðri um árabil.  Grásleppuveiðar eru enn stundaðar frá Rifi.

Sigurður lærið til fiskmatsmanns og starfaði við það um árabil bæði hjá fiskvinnslunum á Hellissandi, Rifi, Ólafsvík og svo víðar um land.

Til margra ára þjónustaði Sigurður, ásamt eiginkonu sinni Guðbjörgu, marga báta frá Rifi með netaafskurð og fellingar. Lengst af störfuðu þau hjá Sigurði Ágústssyni á Rifi og felldu og skáru af fyrir báta í eigu fyrirtækisins sem og aðkomubáta sem lögðu upp hjá fyrirtækinu.

Árið 1981 flutti Sigurður til Keflavíkur og stundaði þar fiskmat og ýmsa vinnu tengda sjávarútvegi ásamt því að vera húsvörður í Gerðaskóla í Garðinum allt þar til hann hætti störfum fyrir aldurssakir.