Póstlisti
Prenta

Kyljur - söngleikur Kristin Kristjánssonar

Kyljur er söngleikur byggður á hluta af Bárðarsögu Snæfellsáss og fjallar um þegar dætur Bárðar (Dumbssonar) Snæfellsáss takast á við frændur sína, syni Þorkels Rauðfelssonar.  Bárður og Þorkell voru sammæðra, synir Mjallar Snæsdóttur.

Dætur Bárðar voru Helga, Þórdís og Guðrún sem hann átti með Mjöll Snæsdóttur og síðan Ragnhildur, Flaumgerður, Þóra, Þórhildur, Geirríður og Mjöll sem hann átti með Flaumgerði Dofradóttur.  Bjuggu allar dætur Bárðar hjá honum á Laugarbrekku á Hellnum þegar atburðurinn gerist.

Synir Þorkels voru Rauðfeldur og Sölvi og bjuggu þeir í Tröð á Arnarstapa.

Í stuttu máli fjallar söngleikurinn um atvik sem átti sér stað í fjörunni við Barnaár á Snæfellsnesi. Frændsystkinin Rauðfeldur og Helga eru að takast á í leik sínum og ýtir Rauðfeldur Helgu á haf út á ísjaka sem var við fjöruborðið.  Helgu rak á jakanum alla leið til Grænlands. Þetta atvik verður til mikillar harmsögu, þar sem m.a. Bárður drepur báða frændur sína og gerist ekki mönnum sinnandi frá þeim tíma.  Sagan verður ekki rakin nánar hér en ég hvet alla til að hlusta á plötuna Kyljur frá upphafi til enda til að fá innsýn inn í þessa frábæru sögu.

Lestur Bárðaögu Snæfellsáss er bæði fróðleg lesning og skemmtileg og hvet ég til að sem flestir lesi hana.

Hér eru tvö af lögunum sem eru úr Kyljum og margir Sandarar þekkja svo vel.

Lögin eru eftir Pálma Almarsson:  

Plötuna er hægt að fá keypta hjá Pálma. Netfangið er palmi@fasteignamidlun.is

----Smelltu hér til að hlusta á Ó Helga  

--- Smelltu hér til að hlusta á Þýtur í þekju

--- Smelltu hér til að lesa Bárarsögu Snæfellsáss

Hlustaðu á brot úr Kyljum á tónlist.is    SMELLTU HÉR