Póstlisti
Prenta

Hún Sveinbjörg Hrólfsdóttir,  dóttir Kristensu (Stellu) á Risabjörgum sem var fósturdóttir Andreu Kristjánsdóttur og Björgvins Alexanderssonar á Risabjörgum og systir Sólveigar Andrésdóttur á Sandi, sendi okkur þessar skemmtilegu myndir sem mamma hennar eftirlét henni. Myndirnar eru úr albúmi ömmu hennar.

Sveinbjörg þekkir ekki þá einstaklinga sem eru á myndunum og því leitum við hjálpar hjá ykkur lesendur góðir.  Ef þið þekkið einhverja á myndunum, vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á hellissandur@hellissandur.is 

Vinsamlegast verið svo væn að benda sem flestum Söndurum á þessar myndir þannig að hægt sé að bera kennsl á sem flesta á myndunum. 

Hún Sveinbjörg á margar fleiri myndir sem munu birtast hér á næstunni.

Smelltu á fyrstu myndina í seríunni, þá stækkar hún. Eftir það er hægt að fletta með því að ýta á „næsta“eða „fyrri“ neðan við myndina.   Fyrir neðan myndina stækkaða kemur númer myndarinnar og lýsing á efni hennar.

Mynd nr. 1 - Kona á hátíðisdegi, líklega afmælisdegi.
1/39 Næsta