Leturstærð

Hún Sveinbjörg Hrólfsdóttir, dóttir Kristensu (Stellu) á Risabjörgum sem var fósturdóttir Andreu Kristjánsdóttur og Björgvins Alexanderssonar á Risabjörgum og systir Sólveigar Andrésdóttur á Sandi, sendi okkur þessar skemmtilegu myndir sem mamma hennar eftirlét henni. Myndirnar eru úr albúmi ömmu hennar.
![]()
Sveinbjörg þekkir ekki þá einstaklinga sem eru á myndunum og því leitum við hjálpar hjá ykkur lesendur góðir. Ef þið þekkið einhverja á myndunum, vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á hellissandur@hellissandur.is
Vinsamlegast verið svo væn að benda sem flestum Söndurum á þessar myndir þannig að hægt sé að bera kennsl á sem flesta á myndunum.
Hún Sveinbjörg á margar fleiri myndir sem munu birtast hér á næstunni.
Smelltu á fyrstu myndina í seríunni, þá stækkar hún. Eftir það er hægt að fletta með því að ýta á næstaeða fyrri neðan við myndina. Fyrir neðan myndina stækkaða kemur númer myndarinnar og lýsing á efni hennar.
|
|
||
| Mynd nr. 6 - Stúlka við fermingu? Stúlkan heitir Sólveig Benedikta Jónsdóttir (Dídí) fædd á Vaðstakksheiði í Neshreppi utan Ennis fædd 1930. Hún er dóttir Jóns Sigurjónssonar Bláfeld og Helgu Káradóttur sem voru ábúendur á Vaðstakksheiði frá 1928-1943. Dídí eins og hún Sólveig er kölluð var mikið hjá Andreu og Björgvini á Risabjörgum. |
||
| Fyrri | 6/39 | Næsta |