Póstlisti
Prenta

Hún Sveinbjörg Hrólfsdóttir,  dóttir Kristensu (Stellu) á Risabjörgum sem var fósturdóttir Andreu Kristjánsdóttur og Björgvins Alexanderssonar á Risabjörgum og systir Sólveigar Andrésdóttur á Sandi, sendi okkur þessar skemmtilegu myndir sem mamma hennar eftirlét henni. Myndirnar eru úr albúmi ömmu hennar.

Sveinbjörg þekkir ekki þá einstaklinga sem eru á myndunum og því leitum við hjálpar hjá ykkur lesendur góðir.  Ef þið þekkið einhverja á myndunum, vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á hellissandur@hellissandur.is 

Vinsamlegast verið svo væn að benda sem flestum Söndurum á þessar myndir þannig að hægt sé að bera kennsl á sem flesta á myndunum. 

Hún Sveinbjörg á margar fleiri myndir sem munu birtast hér á næstunni.

Smelltu á fyrstu myndina í seríunni, þá stækkar hún. Eftir það er hægt að fletta með því að ýta á „næsta“eða „fyrri“ neðan við myndina.   Fyrir neðan myndina stækkaða kemur númer myndarinnar og lýsing á efni hennar.

Mynd 28 - barn

Myndin er af Kristínu Guðnýju Friðriksdóttur fædd : 18.12.1959, dóttir
Auðar Vigfúsdóttur, fædd. 16. 01. 1926. d. 22.10.2008 og Friðriks F.
Welding fæddur. 16.06. 1920. d. 27.08. 2000.
Fyrri 27/39 Næsta