Leturstærð

Hún Sveinbjörg Hrólfsdóttir, dóttir Kristensu (Stellu) á Risabjörgum sem var fósturdóttir Andreu Kristjánsdóttur og Björgvins Alexanderssonar á Risabjörgum og systir Sólveigar Andrésdóttur á Sandi, sendi okkur þessar skemmtilegu myndir sem mamma hennar eftirlét henni. Myndirnar eru úr albúmi ömmu hennar.
![]()
Sveinbjörg þekkir ekki þá einstaklinga sem eru á myndunum og því leitum við hjálpar hjá ykkur lesendur góðir. Ef þið þekkið einhverja á myndunum, vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á hellissandur@hellissandur.is
Vinsamlegast verið svo væn að benda sem flestum Söndurum á þessar myndir þannig að hægt sé að bera kennsl á sem flesta á myndunum.
Hún Sveinbjörg á margar fleiri myndir sem munu birtast hér á næstunni.
Smelltu á fyrstu myndina í seríunni, þá stækkar hún. Eftir það er hægt að fletta með því að ýta á næstaeða fyrri neðan við myndina. Fyrir neðan myndina stækkaða kemur númer myndarinnar og lýsing á efni hennar.
|
|
||
| Mynd 30 - Kona - Iðunn Vigfúsdóttir frá Gimli, Hellissandi. Kona Einars Bergmanns Arasonar frysthústjóra á Hellissandi og síðar kaupmanns í Reykjavík. |
||
| Fyrri | 29/39 | Næsta |