Leturstærð

Hún Sveinbjörg Hrólfsdóttir, dóttir Kristensu (Stellu) á Risabjörgum sem var fósturdóttir Andreu Kristjánsdóttur og Björgvins Alexanderssonar á Risabjörgum og systir Sólveigar Andrésdóttur á Sandi, sendi okkur þessar skemmtilegu myndir sem mamma hennar eftirlét henni. Myndirnar eru úr albúmi ömmu hennar.
![]()
Sveinbjörg þekkir ekki þá einstaklinga sem eru á myndunum og því leitum við hjálpar hjá ykkur lesendur góðir. Ef þið þekkið einhverja á myndunum, vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á hellissandur@hellissandur.is
Vinsamlegast verið svo væn að benda sem flestum Söndurum á þessar myndir þannig að hægt sé að bera kennsl á sem flesta á myndunum.
Hún Sveinbjörg á margar fleiri myndir sem munu birtast hér á næstunni.
Smelltu á fyrstu myndina í seríunni, þá stækkar hún. Eftir það er hægt að fletta með því að ýta á næstaeða fyrri neðan við myndina. Fyrir neðan myndina stækkaða kemur númer myndarinnar og lýsing á efni hennar.
|
|
||
| Mynd 33 - Hjörleifur Sigurðsson frá Hrísdal. Myndin er samkvæmt heimildum frá Þorgils Stefánssyni ekki af honum eins og haldið er fram ér að neðan, heldur af frænda hans Hjörleifi Sigurðssyni frá Hrísdal. Þorgils Stefánsson, frá Ólafsvík. Kennari Akranesi. Hann er sonur Stefáns Kristjánssonar vegaverkstjóra sem er á mynd nr. 29 |
||
| Fyrri | 32/39 | Næsta |