Póstlisti
Prenta

Hún Sveinbjörg Hrólfsdóttir,  dóttir Kristensu (Stellu) á Risabjörgum sem var fósturdóttir Andreu Kristjánsdóttur og Björgvins Alexanderssonar á Risabjörgum og systir Sólveigar Andrésdóttur á Sandi, sendi okkur þessar skemmtilegu myndir sem mamma hennar eftirlét henni. Myndirnar eru úr albúmi ömmu hennar.

Sveinbjörg þekkir ekki þá einstaklinga sem eru á myndunum og því leitum við hjálpar hjá ykkur lesendur góðir.  Ef þið þekkið einhverja á myndunum, vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á hellissandur@hellissandur.is 

Vinsamlegast verið svo væn að benda sem flestum Söndurum á þessar myndir þannig að hægt sé að bera kennsl á sem flesta á myndunum. 

Hún Sveinbjörg á margar fleiri myndir sem munu birtast hér á næstunni.

Smelltu á fyrstu myndina í seríunni, þá stækkar hún. Eftir það er hægt að fletta með því að ýta á „næsta“eða „fyrri“ neðan við myndina.   Fyrir neðan myndina stækkaða kemur númer myndarinnar og lýsing á efni hennar.

mynd 40 - Hjón með barn - Gyða Vigfúsdóttir frá Gimli, Hellissandi f. 15.06.1928 og maður hennar Sveinbjörn Sigtryggsson frá Mosfelli í Ólafsvík ásamt syni þeirra Lofti Sveinbjörnssyni sem var fæddur 20. september 1952.
Gyða Vigfúsdóttir lést 16. febrúar 1972 og Loftur sonur hennar þann 17. desember 1995. Sveinbjörn er búsettur í Kópavogi.
Fyrri 38/39 Næsta